Tilkynningar

Ekki hefur enn verið stofnað til umræðuþráða í þessari umræðu

Áfangar í boði

Áfangi til að gera tilraunir þar sem þið eruð nemendur og ég Ella Jóna kennari bros

Námskeið fyrir alla þá sem vilja læra skyndihjálp og endurlífgun. Nemendur öðlast færni og þekkingu í að beita aðferðum á öruggan hátt í bráðatilfellum.

Menningarsaga fjallar um menningu og listir frá tímum Forn-Grikkja til okkar daga. Í áfanganum er rýnt í áhrifamestu hugmyndastrauma sem mótað hafa vestræna menningu og helstu birtingarform hennar. Áhersla er lögð á myndlist, byggingalist og tónlist. Skoðaðir eru ólíkir þættir menningar, áhrif þeirra á daglegt líf einstaklinga og samspil menningar, trúarbragða og þjóðfélagsgerðar.

Í áfanganum verður fjallað um menningu Forn-Grikkja, áhrif kristinnar trúar og kirkju á hugmyndaheim og menningu Evrópuþjóða. Fjallað verður ítarlega um listastefnur síðustu alda frá endurreisn til módernisma, einkum myndlist, byggingalist og tónlist. Samspil lista og menningar á samfélag og umhverfi.

Forkröfur: SAGA2FR05 og SAGA2MN05.  Námsmat: Verkefni og próf.